Walter elias disney
Walter Elias Disney var fæddur 5.desember 1901. Pabbi hans, Elias Disney var írsk-kanadískur og mamma hans, Flora Call Disney var þýsk-amerísk. Disney var einn 5 systkina, 4 strákar og 1 stelpa. Hann bjó stærstan hluta barnæsku sinnar í Marceline, Missouri og þar byrjaði hann að teikna og mála og byrjaði að selja myndir til nágranna og fjölskylduvina.
1911, þegar hann var 10 ára flutti fjölskyldan til Kansas city og þar fékk hann mikinn áhuga á lestum.
Í menntaskóla fór Disney í tíma í ljósmyndun og teikningu og var teiknimyndasöguhöfundur í skólablaðinu.
Þegar Disney var 16 ára hætti hann í skóla til þess að gangast í lið við herinn en honum var neitað því hann var of ungur. Í staðinn fór hann til Frakklands með Rauða krossinum og keyrði sjúkrabíl þar árið
1919 þá 18 ára. Eftir það flutti hann aftur til Kansas city til að reyna að fá vinnu sem teiknari í blaði. Hann fékk vinnu í auglýsinga/listastúdíoi og þar kynntist hann teiknimyndasöguhöfundinum Ubbe Eert Iwwerks, (Ub Iwerks).
Seinna fór hann að gera auglýsingar með klippi/hreyfi-myndum. Hann fór að prófa sig áfram að gera hreyfimyndir með því að nota myndavél og handteiknaðar myndir og ákvað að stofna sitt eigið hreyfimyndafyrirtæki. Hann réð Fred Harman sem sinn fyrsta starfsmann. Disney og Harmann gerðu samning við kvikmyndahús um að sýna myndirnar þeirra sem þeir kölluðu “Laugh-O-Grams”. Myndirnar urðu vinsælar og þeir gerðu seríu af 7 mínútna myndum sem þeir kölluðu “Alice in cartoonland". Það gekk vel hjá þeim og þeir náðu að koma á fótinn stúdíói sem hét Laugh-O-Gram.
Árið 1923 varð fyrirtækið samt gjaldþrota. Disney og bróðir hans Roy sameinuðu síðan peningana sína og fluttu til Hollywood. Ub Iwerk flutti líka þangað og þeir þrír stofnuðu þar “Disney Brothers' Studio”.
Fyrsti samningurinn þeirra var við dreifingaraðila sem dreifði Alice teiknimyndunum þeirra. Þeir bjuggu líka til nýjan karakter sem hét Oswald the lucky rabbit . 1925 réði Disney teiknara sem hét Lillian Bounds, eftir stutt samband giftust hún og Walt.
Nokkrum árum seinna komst Disney að því að dreifingaraðilinn sem dreifði fyrstu myndinni þeirra hafði fengið einkaréttinn á Oswald. Þá framleiddu þeir þrjár teiknimyndir með nýjum karakter sem Walt hafði verið að gera, Mikka mús. Fyrstu tvær myndirnar voru ekki með hljóði en þriðja myndin Steamboat Willie, með Walt sem rödd Mikka varð strax mjög vinsæl. 1929 gerðu þau seríu af teiknimyndum, silly symphony, og í henni komu fram ýmsir vinir Mikka.
1966 var Walter Elias Disney greindur með lugnakrabbamein og lést 15.desember 1966, 65 ára.
Það halda eflaust margir að Walt hafi verið frystur. En það var lygasaga sem fór af stað. Walt var brenndur.