Walt elias disneyWalter fæddist 5. desember 1901. Hann byrjaði á að prufa sig áfram að gera sínar eigin hreyfimyndir með teikningum og myndavél, ákvað svo að stofna sitt eigið hreyfimyndafyrirtæki.En þegar fyrirtækið varð gjaldþrota þá sameinuðu Walt og Roy(bróðir hans) peningana sína og fluttu til Hollywood. Þeir stofnuðu Disney Brothers' Studio.
15. desember 1966 lést Walt Disney úr lungnakrabbameini, 65 ára að aldri. |
Disney prinsessurMjallhvít er fyrsta Disney prinsessan(árið 1937) og var einnig fyrsta teiknimynd sem var gerð í fullri lengd.
Öskubuska(árið 1950) er byggð á frönsku ævintýri eftir Charles Perrault, sem samdi einnig t.d. Rauðhettu. Þyrnirós(árið 1959) var seinasta myndin með álfum og huldufólki. Litla hafmeyjan(árið 1989) var byggð á sögu H.C.Andersen. Fríða og dýrið(árið 1991) er byggð á frönsku ævintýri. Myndin vann Óskarinn fyrir besta lagið "Beauty and the Beast" og bestu tónlistina. |
Hér getið þið séð bæklinginn okkar :)
Disneyland, floridaWalt valdi staðsetninguna meðal annars vegna frábærs veðurs allt árið. Disneyland opnaði 17.júlí 1955 og gekk ekki vel fyrsta daginn. Ekki var allt tilbúið fyrir opnunardag, það var ekki til nóg af mat og drykk og hælaskór kvenna festust í blautu malbiki við Main street En Disneyland náði sér aftur og þróaðist á hinn besta hátt.
|
könnun um disney
Hér er hægt að sjá könnun sem við gerðum, þar sem við spurðum fólk á mismunandi aldri hvað þau hugsa þegar orðið Disney er sagt. Við vildum sjá hversu mismunandi svörin eru hjá hverjum aldurshópi.
Er mjallhvít íslensk?
Karl Gústaf Stefánsson (Charles Thorsson) teiknari flutti frá Árnessýslu til Kanada rétt fyrir aldamótin 1900. Karl kynntist Kristínu sem var ættuð úr Skagafirði en fædd á Siglufirði þegar hún dvaldist í íslendingabyggðum vestanhafs um tíma. Þau trúlofuðust en ekkert varð úr því vegna aldursmunar. Kristín fór aftur til Íslands og giftist Garðari Þórhallssyni.
|
Karl var mjög flinkur að teikna og sótti hann um starf hjá Disney-kvikmyndaverinu 1934, sem hann fékk samstundis. Karl hét því að hann myndi gera Kristínu ódauðlega. Honum tókst það, útlit Mjallhvítar er mótað í líkingu við Kristínu og var Mjallhvít fyrsta Disney prinsessan.
|