Mikki músDisney gerði Oswald the lucky Rabbit en eignarrétturinn var hjá framleiðandanum. Disney þurfti þá á nýrri persónu að halda svo hann fór að breyta fyrrverandi persónunni Oswald sem var kanína og breytti henni í mús með því að stytta eyrun og gera hann feitari. Músin átti að heita Mortimer en kona Disney vildi það ekki svo hann fékk nafnið Mickey Mouse.
|
Steamboat WillieÁhorfendur fengu fyrst að heyra í Mikka Mús í myndinni Steamboat Willie(kom út árið 1928) sem var þriðja myndin um Mikka Mús og var einnig sú fyrsta sem fór í almenna dreifingu. Áður var búið að gera tvær hljóðlausar teiknimyndir með Mikka Mús.
Hér getið þið séð myndina Steamboat Willie |
Flowers and treesFyrsta teiknimyndin í fullum lit frá Disney heitir Flowers and Trees(árið 1932). Myndin var einnig fyrsta teiknimynd til að vinna Óskarsverðlaun. Myndin er um illan tréstubb sem verður afbrýðissamur í tvö tré sem eru ástfangin og kveikir eld í skóginum.
|